1. HVENÆR VAKNARÐU Á MORGNANA?
eins seint og ég get....
2.EF ÞÚ GÆTIR SNÆTT HÁDEGISVERÐ MEÐ EINHVERJUM FRÆGUM, HVER VÆRI
ÞAÐ?
Alyssu Milano. Hún er flott.
3. GULL EÐA SILFUR?
Á silfurkross, that´s it
4. HVAÐ VAR SÍÐASTA MYNDIN SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ?
Doom, fín mynd.
5. UPPÁHALDS SJÓNVARPSÞÁTTURINN?
horfi eiginlega ekki á sjónvarp. Síðustu þættir sem ég horfði á af
viti voru dead like me, stelpan þar var heillandi karakter 
6. HVAÐ BORÐARÐU Í MORGUNMAT?
Þar sem ég vakna 2 mín áður en ég þarf að fara borða ég ekkert fyrr
en um hádegi.
7. HVAÐ LANGAR ÞIG AÐ GERA ÞEGAR ÞÚ ERT ORÐINN STÓR?
Eiga bíl og eigin íbúð.
8. GETURÐU SNERT NEFIÐ Á ÞÉR MEÐ TUNGUNNI?
Nei. Not even close....
9. HVAÐ VEITIR ÞÉR INNBLÁSTUR?
uuu.. dunno....
10. HVAÐ ER MIÐNAFNIÐ ÞITT?
Ingi
11. STRÖND, BORG EÐA SVEITASÆLA?
Sveitasæla sem er samt ekki langt frá borg.
12. SUMAR EÐA VETUR?
Sumar, fokking hata vetur
13. UPPÁHALDS ÍS?
Hörkutólaís (lítill ís í brauðformi með súkkulaðisósu.)
14. SMJÖR, SALT EÐA SYKUR Á POPP?
salt í hófi
15. UPPÁHALDS LITURINN ÞINN?
vínrautt eða blackburn blátt
16. UPPÁHALDS BÍLLINN ÞINN?
Opelinn sálugi, þótt Sunny sé að vinna á
17. HVAÐ FINNST ÞÉR BEST AÐ BORÐA Á SAMLOKU?
smjör og malakoff
18. HVERT FÓRSTU SÍÐAST Í FRÍ?
USA, New York
19. HVAÐA PERSÓNUEIGINLEIKA FYRIRLÍTURÐU?
geðveikt happy fólk, vá hvað það getur farið í taugarnar á mér
þegar fólk staðfastlega neitar að sjá neitt nema bara jákvæðu
hlutina....það og fólk sem þykist vita allt betur en aðrir...
20. UPPÁHALDSBLÓM?
þegiðu
21. EF ÞÚ YNNIR STÓRA POTTINN Í LOTTÓINU, HVERSU LENGI MYNDIRÐU
BÍÐA ÁÐUR EN ÞÚ SEGÐIR FÓLKI FRÁ ÞVÍ?
Ég væri byrjaður að eyða svo fljótt að það kæmust allir að því
strax
22. SÓDAVATN EÐA VENJULEGT VATN?
sódavatn
23. HVERNIG ER BAÐHERBERGIÐ ÞITT Á LITINN?
hvítt og einhvernveginn fíflalega gult, (ég er að fara mála það,
come on)
24. HVAÐ ERU MARGIR LYKLAR Á LYKLAKIPPUNNI ÞINNI?
ég er með þrjár lyklakippur, 5 á hverri
25. HVAR ÆTLARÐU AÐ EYÐA ELLINNI?
hugsa um það þegar ég verð gamall
26. GETURÐU JÖGGLAÐ?
ha?
27. UPPÁHALDS DAGUR VIKUNNAR?
sennilega laugardagur ef maður þarf ekki að gera eitthvað
28. RAUÐVÍN EÐA HVÍTVÍN?
af tvennu slæmu, rauðvín en bæði eru pathetic
29. HVERNIG EYDDIRÐU SÍÐASTA AFMÆLISDEGI?
vinnu, út að borða með Danna, Henný, Björgvin og Smára.
Pictionary
30. ERTU MEÐ LÍFFÆRAGJAFAR KORT?
Nei
31. HVORT MYNDIRU VILJA EIGNAST STRÁK EÐA STELPU?
Surprise me
32. HVAÐ KEMUR ÞÉR Í GÍRINN?
rétt stemning...
33. ERTU FEMINSTI?
Nei
34. FLOTTASTI LÍKAMSHLUTINN Á HINU KYNINU?
Fer eftir eintaki
35. ELSKARÐU EINHVERN?
Sjálfan mig, og ykkur hin öll líka 
35.SEGÐU EITTHVAÐ FALLEGT UM MANNESKJUNA SEM SENDI ÞÉR
ÞETTA:
Sigrún er fín stelpa, alltaf hægt að tala við hana. Og já,
takk fyrir að finna eitthvað handa mér að gera, ÆÐISLEGT að fá
svona könnun....
FRÁ HVERJUM ERU MINNSTAR LÍKUR Á AÐ ÞÚ FÁIR ÞETTA SENT TIL
BAKA
Ég nennti ekki að senda þetta í email svo ég setti þetta bara á
bloggið... enjoy
HVER HELDURÐU AÐ VERÐI FYRST/UR TIL AÐ SENDA ÞÉR ÞETTA TIL
BAKA
Sjá svar fyrir ofan....